Is this subtitle correct?

Skyndihjálp: Endurlífgun ungabarna

70,227 views
Back to the program
Resources and description

Lærðu að beita ef um tognun er að ræða.

Lærðu að veita lífbjargandi aðstoð í gegnum skyndihjálpamyndböndin okkar sem unnin voru í samstarfi við Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Þetta myndband hefur verið talsett Valur Freyr Einarsson. Gakktu til liðs við okkur ef þú vilt vinna myndbönd með okkur.

Loading comments ...

Myndbandið var unnin í samstarfi við

Skyndihjálp:

Endurlífgun ungabarna

Í þessu myndbandi lærir þú að framkvæma endurlífgun á ungabarni sem er yngra en 1 árs.

Ef barnið missir meðvitund, kallaðu eða hringdu á hjálp í Neyðarlínuna 112.

Veltu barninu á bakið.

Skyndihjálp:

1 - Eðlileg öndun?

Kannaðu hvort að barnið andar eðlilega með því að leggja aðra höndina á ennið og fingurgóma hinnar handarinnar undir hökuna

Hallaðu höfðinu örlítið, í eðlilega stöðu.

Ef þú sérð brjóstkassan ekki rísa og hníga og finnur eða heyrir ekki eðlilegan andardrátt andar barnið ekki eðlilega.

2 - Hringdu í Neyðarlínuna 112

Hringdu í Neyðarlínuna 112.

3 - Hjartastuðtæki?

Ef þú hefur aðgang að hjartastuðtæki náðu í það, ef einhver annar er á staðnum, biddu viðkomandi að sækja hjartastuðtæki.

4 - Endurlífgun

Ef ekkert hjartastuðtæki er tiltækt eða á meðan þú bíður eftir tækinu skaltu hefja endurlífgun.

Hnoðaðu með tveimur fingrum á miðjan brjóstkassann.

Endurlífgun

Hnoðaðu 30 sinnum

Hnoðaðu 30 sinnum, þrýstu brjóstkassanum niður um 1/3 af þykkt brjóstkassans.

Hnoðaðu stöðugt, tvisvar sinnum á sekúndu

Blástu 2 sinnum

Haltu áfram að hnoða 30 sinnum á brjóstkassann og blása 2 sinnum til skiptis.

Eða

Hjartahnoð

Ef þú getur ekki eða villt ekki blása skaltu eingöngu beita hjartahnoði.

Ef þú blæst í barnið, ekki gleyma að opna öndunarveginn vel. Settu munninn á þér yfir nef og munn barnsins og fylgstu vel með því að brjóstkassinn lyftist.

Haltu áfram endurlífguninni þar til ungabarnið fer að anda eðlilega, sérhæft björgunarfólk eða hjartastuðtækið kemur á staðinn.

Endurlífgun ungbarna

Fyrstu mínúturnar eftir hjartastopp getur verið að einstaklingurinn andi, grunnt og slitrótt .

Þetta eru ósjálfráðar hreyfingar og ekki má rugla þeim saman við eðlilega öndun.

Download

Next video

Sikana - Skyndihjálp: Bit manna og dýra
En poursuivant votre navigation sur ce site, vous acceptez l'utilisation de cookies pour vous proposer des services adaptés à vos centre d'intérêts. En savoir + OK